top of page
1054600.jpg

Útivist í Urriðavatnsdölum

Friðlýstur fólkvangur í Urriðakotshrauni

Að tillögu Garðabæjar og Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa, sem er eigandi landsins, hefur Urriðakotshraun í Urriðavatnsdölum verið friðlýst sem fólkvangur. Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra undirritaði friðlýsinguna þann 10. janúar 2023. 

 

Deiliskipulag svæðisins var samþykkt í júlí 2023 og er þetta í fyrsta skipti sem unnið er að deiliskipulagi samhliða friðlýsingu. Deiliskipulagið tryggir sameiginlega sýn Garðabæjar, Umhverfisstofnunar og Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa um farsæla þróun og uppbyggingu á svæðinu.

Með deiliskipulaginu er verið að festa Urriðavatnsdali og nánasta umhverfi þeirra í sessi sem fjölbreytt og aðlaðandi útivistarsvæði fyrir allan almenning og tryggja um leið vernd einstakrar náttúru, menningarminja og landslags.

Urriðakotshraun liggur milli Urriðavallar og Vífilsstaðahlíðar í Heiðmörk og er hluti af Búrfellshrauni sem liggur frá Búrfelli til sjávar. 

Búrfellshraun 2019-05-24-008.jpg

Við undirritun friðlýsingar fólkvangs í Urriðakotshrauni í Garðabæ 10. janúar 2023. Frá vinstri: Oddfellowarnir Hlöðver Kjartansson, Steindór Gunnlaugsson og Heiðar Friðjónsson, Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra, Almar Guðmundsson bæjarstjóri, Júlíus Rafnsson Oddfellow, Björg Fenger bæjarfulltrúi, Ingjaldur Ásvaldsson Oddfellow, Halldóra Hreggviðsdóttir skipulagsráðgjafi hjá Alta, Guðmundur Eiríksson stórsír Oddfellowreglunnar og Guðbjörg Brá Gísladóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs Garðabæjar. Ljósmynd: Garðar Pétursson.

Skýringartextar deiliskipulagssvæði.jpg

Deiliskipulagssvæðið (rauða brotalínan). Friðlýsti fólkvangurinn er í Urriðakotshrauni (svarta brotalínan)

20190603_170411.jpg

​Hvað felst í því að friðlýsa fólkvang?

Samkvæmt náttúruverndarlögum er heimilt að friðlýsa landsvæði til útivistar og almenningsnota sem fólkvang. Skal verndun svæðisins miða að því að auðvelda almenningi aðgang að náttúru og tengdum menningarminjum í nánd við þéttbýli til útivistar, náttúruskoðunar og fræðslu.

 

Einn þekktasti fólkvangurinn með aðstöðu til útivistar er í Bláfjöllum, þar sem stærsta skíðasvæði landsins er að finna.

Margar fallegar hraunmyndanir er að finna í fólkvanginum í Urriðakotshrauni.

Ný nálgun skipulags- og friðlýsingarferlis

Árið 2007 hófst umræða á vettvangi Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowreglunnar (StLO), sem er eigandi landsins, um að þróa Urriðavatnsdali sem fjölbreytt útivistarsvæði samhliða vernd einstakra menningar- og náttúruminja. Mikil undirbúningsvinna hefur átt sér stað síðan þá, í samvinnu við nefndir og ráð Garðabæjar og hlutaðeigandi opinberar stofnanir.

Deiliskipulag. Sú leið var farin að vinna nýtt deiliskipulag fyrir Urriðavatnsdali samhliða friðlýsingu fólkvangs í Urriðakotshrauni ásamt stjórnunar- og verndaráætlun. Með því móti er hægt að tryggja samræmi í stefnu og aðgerðum á svæðinu. Skipulagslýsingin fyrir deiliskipulagið var kynnt fyrir umsagnaraðilum og almenningi í október og nóvember 2020. Gafst þá kostur á að koma með athugasemdir og ábendingar sem verða hafðar til hliðsjónar við mótun deiliskipulagstillögunnar.

 

Vinnslutillaga deiliskipulagsins fór síðan sams konar kynningarferli í byrjun árs 2021 og að því loknu var sjálf tillagan að nýju deiliskipulagi auglýst og frestur gefinn til að skila inn athugasemdum.

20190603_174449.jpg
Lauf IMG_3181.JPG

Framtíðarsýn og stefnumörkun Oddfellowa

Framtíðarsýn Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa um verndun og nýtingu svæðisins var unnin í samráði við Garðabæ. Það er sameiginlegur vilji sjóðsins og Garðabæjar að þar verði tryggt samspil útivistar og viðhalds þeirra náttúru- og menningarminja sem einkenna þetta einstaka svæði og gefa því sérstöðu.   

 

Sýn sjóðsins er að Urriðavatnsdalir verði aðlaðandi útivistarsvæði, þar sem útivist og fræðsla fari saman við vernd einstakrar náttúru, menningarminja og landslags. Það er best tryggt með friðlýsingu fólkvangs í Urriðakotshrauni.

 

Almenningur á greiðan og óhindraðan aðgang að fólkvanginum og þar verða núverandi stígar endurbættir með góðum tengingum við nærliggjandi svæði, vönduð fræðsluskilti verða sett upp ásamt aðstöðu til umhverfisfræðslu. Jafnfram verður þar aðstaða til golfiðkunar á heimsmælikvarða.

Fyrsti fólkvangurinn á landi í einkaeigu

Styrktar- og líknarsjóður Oddfellowreglunnar er eigandi landsins og er Urriðakotshraun fyrsti friðlýsti fólkvangurinn á landi í einkaeigu. Eignarhaldið breytir þó engu um þau markmið Oddfellowa að svæðið sé aðgengilegt öllum almenningi um alla framtíð til að njóta útivistar.

Hópur félaga í Oddfellowreglunni keypti jörðina Urriðakot árið 1946 og gaf hana Styrktar- og líknarsjóði Oddfellowreglunnar (StLO) árið 1957. Landareignin nær m.a. yfir helming Urriðavatns, Kauptún, Urriðaholt, Urriðavatnsdali, Urriðakotshraun og hluta Selgjár (sem var friðlýst árið 2020 ásamt Búrfellsgjá og Búrfelli). 

Styrktar- og líknarsjóður Oddfellowa nýtir tekjur af eignarhaldi sínu á landi Urriðakots til fjölbreyttra góðgerðamála. 

Horft yfir hluta friðlýsta fólkvangsins. Göngustígur liggur eftir svæðinu og er fyrirhugað að endurbæta hann og færa að hluta nær hraunjaðrinum.

1054599.jpg
20200826_121444.jpg

Vinnan við  friðlýsingu fólkvangsins

Samráðshópur vegna friðlýsingar Urriðakotshrauns sem fólkvangs hóf störf í maí 2019. Hópurinn starfaði undir stjórn Umhverfisstofnunar en í honum sátu fulltrúar landnýtingarnefndar Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa, Garðabæjar og umhverfis- og auðlindaráðuneytis. 

Umhverfisstofnun kynnti áform um friðlýsingu fólkvangs í Urriðakotshrauni í lok september 2020. Frestur til að skila inn athugasemdum til Umhverfisstofnunar var til 4. desember 2020. Í framhaldinu unnu fulltrúar Umhverfisstofnunar, umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, landeigenda og Garðabæjar drög að friðlýsingarskilmálum og lögðu fyrir rétthafa lands og aðra sem hagsmuna áttu að gæta. Fyrirhuguð friðlýsing var síðan auglýst opinberlega í þrjá mánuði og var öllum gefinn kostur á gera athugasemdir við tillöguna.

Urriðakotshraun - hinn nýi fólkvangur í Garðabæ

Urriðakotshraun liggur á milli Vífilsstaðahlíðar í Heiðmörk og Urriðavallar og afmarkast af Maríuhellum í vestri og Selgjá í austri. Í aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 er stefnt að friðlýsingu þess sem fólkvangs, sem nú er orðið að veruleika. Í núverandi mynd er þetta svæði fremur óaðgengilegt og lítt þekkt en með breytingunum tengist það Heiðmörk og því víðfeðma göngu- og reiðstígasvæði sem liggur um upplönd Garðabæjar.

Urriðakotshraun er hluti af Búrfellshrauni, sem liggur frá Búrfelli til sjávar. Vestur af Maríuhellum kallast hraunið Vífilsstaðahraun en austan við liggja Selgjá, Búrfellsgjá og Búrfell, sem nýbúið er að friðlýsa. Allt er svæðið svo hluti af Græna treflinum svokallaða, sem sveigist utan um höfuðborgarsvæðið frá Kaldárbotnum í suðri að Mógilsá í norðri.

Allt svæðið að Heiðmörk kallast Urriðavatnsdalir, en Urriðakotshraun liggur milli golfvallarins og Heiðmerkur. 

Búrfellshraun 2019-06-15-346-minni útgáf
Búrfellshraun 2019-06-15-335-minni útgáf

Nýjar golfbrautir samhliða bættu aðgengi almennings

Samkvæmt fyrirliggjandi hugmyndum er fyrirhugað að leggja fjórar nýjar golfbrautir sem verða hluti af Urriðavelli á grónum hraunflötum í Urriðakotshrauni. Golfbrautirnar verða lagðar í einfaldri röð framhjá og innan við hraunmyndanirnar. Um leið skapast gott rými fyrir endurbættan útivistarstíg samhliða golfbrautunum. Þessar framkvæmdir verða hluti af stækkun Urriðavallar úr 18 í 27 holur.

 

Áhersla er lögð á góðar aðstæður til almennrar útivistar á svæðinu m.a. með  því að koma fyrir útivistarstígum með tengingum við nærliggjandi svæði. Með fyrirhuguðum framkvæmdum opnast fallegt útivistar- og göngusvæði meðfram tígulegum hraunjöðrum.

 

Verndun hraunsins og sérstaklega hraunjaðarins er forgangsmál í öllum þeim framkvæmdum sem fyrirhugað er að ráðast í.

Stækkun Urriðavallar á öðrum nálægum svæðum

Tvær aðrar brautir í þessari stækkun yrðu syðst á svæði sem þegar hefur verið raskað með línuvegi og raflínum sem ganga þvert í gegnum það. Þá er gert ráð fyrir fjórum nýjum golfbrautum í dalverpinu sunnan við núverandi golfvöll. Sá hluti fellur innan núverandi íþróttasvæðis Urriðavallar. Með þessu móti stækkar Urriðavöllur um 9 holur.

Í umsögn sinni um þessi áform sagði Umhverfisstofnun meðal annars: „Samkvæmt 52. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013 er heimilt að friðlýsa landsvæði til útivistar og almenningsnota sem fólkvang. Skal verndun svæðisins miða að því að auðvelda almenningi aðgang að náttúru og tengdum menningarminjum í nánd við þéttbýli til útivistar, náttúruskoðunar og fræðslu. Urriðakotshraun fellur undir ákvæði 61. gr. laga um náttúruvernd um sérstaka vernd og forðast ber að raska jarðminjum nema brýna nauðsyn beri til. Umhverfisstofnun telur að sú tillaga að uppbyggingu golfvallar sem hér um ræðir í Urriðakotshrauni bendi til óverulegrar röskunar á hrauninu og geti fallið undir starfsemi fólkvangs sé þess gætt að aðgengi almennings um svæðið sé ekki skert og að hrauninu verði sem minnst raskað

Horft yfir raskaða svæðið við háspennulínurnar þar sem áformað er að hafa tvær nýjar golfbrautir.

Búrfellshraun 2019-06-15-337-minni útgáf
Hluti_af_gönguleiðakortinu.jpg

Aðgengilegt kort af örnefnum og gönguleiðum

Styrktar- og líknarsjóður Oddfellowa hefur gefið út kort af örnefnum og göngu- og reiðleiðum í upplandi Garðabæjar. Kortið nær yfir svæði frá Urriðaholti og Vífilssstöðum til Búrfells og Helgafells.

 

Mikið úrval er af gönguleiðum á þessu svæði, en samfellt kort af þeim hefur ekki verið til áður. Prentuð útgáfa kortsins fæst ókeypis í afgreiðslu Náttúrufræðistofnunar Íslands, í þjónustuveri Garðabæjar og golfskála Odds á Urriðavelli. Nálgast má rafræn útgáfu kortsins með því að smella á myndina hér til hliðar.


Fyrir snjalltæki er kortið fáanlegt ókeypis Avenza appinu (sem er líka ókeypis). Kortið finnst í kortaverslun Avenza með því að leita eftir „Örnefni og útivist í upplandi Garðabæjar.“ Með kortinu í símanum sér notandinn hvar hann er staddur hverju sinni.

Flogið yfir friðlýsta fólkvanginn í Urriðakotshrauni

Hafa samband
bottom of page